Skilmálar

Upplýsingar um seljanda:

Nielsen Sérverzlun ehf. kt: 451018-1320. Fyrirtækið sérhæfir sig í innflutningi og sölu á hönnunarvörum. 
Nielsen Sérverzlun áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, til dæmis vegna rangra verðupplýsinga eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis.

Afhending vöru
Allar pantanir eru afgreiddar 2-5 dögum eftir pöntun. Sé varan ekki til á lager munum við hafa samband og tilkynna um áætlaðan afhendingartíma vörunnar. Af öllum pöntunum dreift af Íslandspósti gilda afhendingar-, ábyrgðar og flutningsskilmálar Íslandspósts um afhendingu vörunnar. Nielsen Sérverzlun ber samkvæmt þessu enga ábyrgð á týndum sendingum eða tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Ef að vara týnist í pósti eða verður fyrir tjóni frá því að að hún er send frá Nielsen Sérverzlun til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda. Hægt er að greiða 590 kr. fyrir rekjanlegt bréf. 

Hægt er að sækja vöru í pósthús, í verslun, fá hana afhenta útí bíl eða senda heim að dyrum.

Sendingarkostnaður
Öll verð í vefverslun eru með inniföldum 24% vsk en sendingakostnaður bætist síðan við áður en greiðsla fer fram. Við sendum allar vörur með Íslandspósti beint heim að dyrum. Sendingarkostnaður er 1500 kr. 

Vöruskil
Veittur er 14 daga skilaréttur við kaup á vöru gegn því að framvísað sé sölureikningi sem sýnir með fullnægjandi hætti hvenær varan var keypt. Varan þarf að vera ónotuð, í fullkomnu lagi og í sínum upprunalegu óskemmdu
umbúðum þegar henni er skilað. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Við skil á vöru er miðað við upprunalegt verð hennar, nema viðkomandi vara sé á útsölu eða á sértilboði við vöruskil. Þá er miðað við verð vörunnar þann dag sem henni er skilað. Ef kaupandi vill ekki skipta vörunni fyrir aðra vöru verður gefin út inneignarnóta eftir að varan er móttekin. Inneignarnótan er í formi kóða sem er notaður hér á síðunni þegar verslað er og gildir í fjögur ár frá útgáfudegi. Útsöluvörum er hvorki hægt að skila né skipta. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.

Gölluð vara
Sé vara gölluð er viðskiptavinum boðin ný vara í staðinn og greiðum við allan sendingakostnað sem um ræðir. Eða endurgreiðum ef þess er krafist. Að öðru leiti vísast til laga um húsgöngu og fjarsölusamninga nr.46/2000 og laga um neytendakaup.

Greiðslur
Við tökum við greiðslum með Visa, MasterCard, Visa Electron og Maestro í gegnum greiðslusíðu Teya.

Öryggisskilmálar
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar upplýsingar sem hann gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar verða ekki undir neinum kringumstæðum afhentar þriðja aðila.

Lög og varnarþing
Samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.