Collection: Umemi

Ragnheiður Ösp vöruhönnuður ásamt fleiru á heiðurinn af Notknot púðanum. Púðinn á sér langa sögu en hann kom fyrst fyrir sjónir á hönnunarmars 2012 og hefur ávallt vakið athygli fyrir skemmtilega öðruvísi form. Púðinn er allur unninn úr íslenskri ull og hnútarnir eru fjórir talsins.
Nú eru nokkur ár síðan púðarnir hættu í framleiðslu hér á Íslandi en Nielsen Sérverzlun var svo heppin að fá nokkur stykki í sölu af upprunalegu púðunum, það er því um mjög takmarkað magn að ræða í hverjum lit. Einstakt tækifæri að eignast upprunalega Notknot púðann.