Arna Gná
Dúkka #5
49.900 kr
"Dúkkan er fullkomlega ófullkomin". Arna Gná er listakona sem dáist að ófullkomnun í allri sinni mynd og þá sérstaklega líkamanum, hún skapar dúkkurnar með það í huga. Efniviðurinn sem hún notar er íslensk ull ásamt öðru garni, nælonsokkar og vax, svo þróast hver dúkka áfram með meiri efnivið eins og perlum, taui, vír og fleiru. Sérstaklega falleg list og þar sem hver og ein dúkka er handgerð og tekur jafnvel marga mánuði að verða til þá eru engar tvær eins.
Lengd dúkku er um 40 cm